Fara í efni

Almyrkvi 12. ágúst í Suðurnesjabæ - upplýsingar fyrir íbúa og gesti

Almyrkvi 12. ágúst í Suðurnesjabæ - upplýsingar fyrir íbúa og gesti

Nú styttist í einn merkilegasta náttúruviðburð síðari ára þegar almyrkvi verður sýnilegur yfir Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst. Almyrkvaslóðin nær yfir allan Reykjanesskaga sem gerir svæðið að einum besta stað landsins til að upplifa þennan einstaka viðburð. Í Garði stendur almyrkvinn yfir í um 1 mínútu og 42 sekúndur og í Sandgerði í um 1 mínútu og 45 sekúndur.

Undirbúningur fyrir almyrkvann hefur staðið yfir í langan tíma og búist er við miklum fjölda gesta í Suðurnesjabæ, sérstaklega á Garðskaga.

Njótið almyrkvans í heimabyggð

Við hvetjum íbúa Suðurnesjabæjar til að nýta þetta einstaka tækifæri og upplifa almyrkvann sem næst heimili sínu. Það verður sérstök upplifun að verða vitni að almyrkvanum úr eigin hverfi og víða verður frábært útsýni.

Fyrir þá sem vilja njóta almyrkvans á opnu svæði mælum við sérstaklega með:

  • Sjávarbraut í Sandgerði, eða
  • Garðskaga.

Til að stuðla að öruggri og greiðri umferð hvetjum við gesti til að fara gangandi eða hjólandi á þessi svæði til að minnka umferðarálag.

Umferð og lokanir

Til að tryggja öryggi og greiða umferð verða gerðar tímabundnar breytingar á umferð frá kl. 12:00 til 19:00 miðvikudaginn 12. ágúst.

  • Sjávarbraut í Sandgerði verður lokuð fyrir bílaumferð, þannig að gangandi gestir geti notið almyrkvans þar á öruggan hátt.
  • Skagabraut verður einstefna út að Garðskaga. Umferð til baka verður um Útgarðsveg og þaðan inn á Garðskagaveg.

Þessar breytingar eru gerðar þar sem búist er við mikilli umferð á svæðinu. Markmiðið er að greiða fyrir umferð, auka öryggi og tryggja að viðbragðsaðilar geti komist greiðlega um ef á þarf að halda.

Við hvetjum gesti til að mæta tímanlega og gera ráð fyrir aukinni umferð bæði fyrir og eftir almyrkvann.

Bílastæði og þjónusta

Gjaldskyld bílastæði verða í boði á tveimur túnum á Garðskaga í samstarfi við Parka. Einnig verður sérstakt bílastæði fyrir rútur á Víðisplaninu.

Salernisaðstaða verður á Garðskaga og við Sjávarbraut í Sandgerði.

Öryggi og góð umgengni

Til að tryggja sem besta upplifun fyrir alla biðjum við gesti að:

  • Fylgja leiðbeiningum lögreglu, björgunarsveita og starfsfólks á svæðinu.
  • Leggja aðeins á merktum bílastæðum og halda neyðarleiðum opnum.
  • Ganga vel um náttúruna og taka allt rusl með sér.
  • Nota aðeins viðurkennd sólarmyrkvagleraugu eða annan öruggan búnað þegar horft er á sólina fyrir og eftir almyrkvann.
  • Forðast notkun dróna yfir mannfjölda meðan á almyrkvanum stendur, þar sem þeir geta raskað upplifun annarra og skapað óþarfa öryggisáhættu.

Nánari upplýsingar um almyrkvann, tímasetningar og öryggisleiðbeiningar má finna á upplýsingavef Almyrkva 2026 og hjá Visit Reykjanes.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum er hægt að senda tölvupóst á afgreidsla@sudurnesjabaer.is eða hafa samband við þjónustuver Suðurnesjabæjar í síma 425-3000.